Lög Arna
Lög
1.gr Nafn.
Nafn félagsins er Ernir, Bifhjólaklúbbur Suðurnesja
2.gr. Merki.
Merki og nafn félagsins er áletrað nafni félagsins og með mynd sem er táknræn fyrir nafnið. Taumerki skal vera með númeri félagsmanns og skal borið á öxl. Merkið er eign félagsins. Númeri skal ekki endurúthlutað þó félagsmaður hætti
eða falli frá.
3.gr. Heimili.
Heimili félagsins og varnarþing skal vera í Reykjanesbæ.
4.gr. Tilgangur.
Tilgangur félagsins er að koma á sem víðtækustu samstarfi bifhjólafólks á
Suðurnesjum. Stjórn skal ver í forsvari fyrir félagið á opinberum vettvangi.
Stuðla að bættri umferðarmenningu með góðu fordæmi.
Hjóla saman , skemmta sér og öðrum.
5 gr. Inntaka.
Allt áhugafólk um bifhjól getur fengið inngöngu í félagið að því tilskyldu að skilyrði fyrir inntöku séu uppfyllt. Inntökuskilyrði í félagið eru að:
1: Umsækjandi í Erni hafi áhuga á bifhjólum.
2. Umsækjandi hafi greitt fullt inntökugjald sem er óendurkræft
3. Stjórn Arna þarf að yfirfara umsóknir og eftir atvikum samþykkja inngöngu nýrra félaga.
Innifalið er afnot af merki félagsins.
6.gr. Brottvísanir.
Hægt er að vísa einstaklingi úr félaginu hafi hann sýnt að hann sé ekki fullfær
um að bera merki félagsins. Til þess þurfa fimm fullgildir meðlimir að leggja
fram skriflega, rökstudda kæruna til stjórnar. Stjórn hefur úrslitavald varðandi meðferð brottvísana verði hún samþykkt ber viðkomandi að skila inn merki félagsins.
7.gr. Gjöld.
Rekstur félagsins skal fjármagnaður með félagsgjöldum og öðrum fjáröflunum. Tvær útfærslur eru á félagsgjaldi annars einstakling og síðan fjölskyldugjald. Aðalfundur ákveður félagsgjöld fyrir ár hvert. Félagsgjöld skulu staðgreidd.
Ef félagsmaður greiðir ekki félagsgjöld í tvö samfeld ár þá dettur hann sjálfkrafa af félagaskrá. Þá þarf hann að greiða aftur inntökugjald ef hann vill verða fullgildur félagsmaður á ný.
8.gr. Sjóður.
Tekjur renna í sjóð félagsins og skal honum varið í rekstur og önnur tilfallandi
verkerfi félagsins. Reiknisárið er almanaksárið. Engin félagi hefur tilkall til hluta af sjóðnum þótt hann hverfi úr félagsskapnum eða honum sé slitið.
9. gr. Útgáfa.
Stjórn klúbbsins heldur úti heimasíðu www.123.is/ernir þar er hægt að finna ýmsan fróðleik og gagnlegar upplýsingar.
10 gr. Um aðalfund.
Haldinn skal aðalfundur fyrir lok janúar ár hvert. Skal þar taka til venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum klúbbsins. Stjórn boðar til aðalfundar með a.m.k. tuttugu daga fyrirvara og skal hann boðaður með tölvupósti til félagsmanna, auglýsingu í staðarblöðum og á heimasíðu félagsins. Með fundarboði skulu fylgja tillögur að lagabreytingum ef einhverjar eru. Eintak af endurskoðuðum ársreikingum skal liggja fyrir á aðalfundi
11.gr. Aðalfundur.
Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagar: Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis skuldlausir félagar og fjölskyldumeðlimir sem náð hafa 17 ára aldri enda greiði þeir fullt félagsgjald eftir að 17. ára aldri er náð, enda teljast þeir fullgildir félagar. Engin getur kosið í umboði annars félaga. Á aðalfundi skulu
tekin fyrir þessi mál:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs
3. Stjórn leggur fram reikninga liðins árs
4. Lagabreytingar samkvæmt 13.gr. laga félagsins.
5. Kosning stjórnar og skoðunarmanna samkvæmt 12.gr laga félagsins
6. Kosning nefnda samkvæmt 14.gr. laga félagsins.
7. Önnur mál
12.gr. Stjórnarkjör.
Í Stjórn félagsins skulu kosnir 5 einstaklingar og tveir til vara. Rétt til stjórnarsetu hafa þeir sem hafa verið fullgildir félagar í klúbbnum í tvö ár. Tilkynna þarf framboð til stjórnar skriflega til ritara klúbbsins eigi síðar en 15 janúar, framboðslista skal birta á heimasíðu klúbbsins 16 janúar. Stjórn skal skipuð formanni, varaformanni, gjaldkera, tveimur meðstjónendum og tveimur varamönnum. Hver stjónarmeðlimur skal kosinn til tveggja ára. Formaður, gjaldkeri, meðstjórnandi og einn varamaður skulu kosnir annað árið. Varaformaður, meðstjórnandi og varamaður eru kosnir hitt árið. Formaður má ekki sitja fleiri en tvö kjörtímabil í röð. Kosningu hljóta þeir sem flest atkvæði fá. Að auki skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga ásamt varamanni.
Verði atkvæði jöfn sker hlutkesti úr.
13.gr. Lagabreytingar. 16.gr. Aukaaðalfundur.
17.gr. Slit.
Lagabreytingar má aðeins leggja fram til samþykktar á aðalfundi enda hafi
þeirra verið getið í fundarboði. Ná þær aðeins fram að ganga að 3/4 hlutar
mættra fullgildra félaga séu þeim samþykkir. Séu þær feldar og bornar upp samhljóða eða efnisbreytingarlaust á næsta aðalfundi þar á eftir ná þær aðeins samþykki með 2/3 hluta atkvæða mættra fullgildra félaga.
Tillögur til lagabreytinga skal senda stjórn eigi síðar en þrjátíu dögum
fyrir aðalfund. Allar þær lagabreytingar sem stjórn hafa borist skal senda með aðalfundarboði til félaga félagsins.
14.gr. Nefndir.
Á aðalfundi félagsins skal kjósa í nefndir á vegum félagsins, enn fremur skipar stjórn í nefndir eftir þörfum. Hver nefnd skal skipa sér einn fulltrúa sem er tengiliður við stjórn. Verksvið nefndanna vísast til nafns þeirra og skulu þær
starfa eftir bestu getu og hafa hagsmuni félagsmanna og bifhjólafólks að
leiðarljósi. Engin nefnd getur farið út í framkvæmdir og verk án
samþykkis stjórnar, sem þýðir að engin nefnd getur eytt peningum
félagsins eða tíma félagsmanna nema stjórnin hafi samþykkt það fyrst.
15.gr. Stjórn.
Stjórn skiptir með sér verkum. Formaður boðar til stjórnarfunda ef þörf
krefur eða tveir stjórnarmeðlimir óska þess enda hafi þeir áður gert grein fyrir fundarefni. Tryggt skal að stjórn geti komið saman með stuttum fyrirvara.
Taki varaformaður stjórnar við sæti formanns skal stjórn skipa nýjan varaformann. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum, þó er ályktun því aðeins
lögleg að þrír stjórnarmenn hið fæsta samþykki hana. Stjórn hefur á hendi sér
allar framkvæmdir milli aðalfunda, hefur eftirlit með nefndum og kemur
fram fyrir hönd félagsins.
Stjórn kveður til aukaaðalfundar þegar þess er þörf eða a.m.k. 1/5 hluti fullgildra félaga félagsins óski þess enda geri þeir áður grein fyrir fundarefni. Til aukaaðalfundar skal boðað með tuttugu daga fyrirvara, með tölvupósti til félagsmanna, auglýsingu í staðarblöðum og á heimasíðu félagsins.
Félaginu verður aðeins slitið á aðalfundi og til þess þarf samþykki 3/4 hluta mætra
fullgildra félaga. Fundur sá er félaginu slítur ráðstafar eigum þess til líknarmála.
Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi þann 31. jan 2010