Lög Arna

  

Heim!
FélagarTil söluDagskráNetmyndirHlekkirMyndasíða ArnaÍslensk kynningEnglesh introFundagerðir

Lög Arna
Færð/Kort
Stjórn/nefndir
Gestabók

 


Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja

Lög

1.gr Nafn.
Nafn félagsins er Ernir, Bifhjólaklúbbur Suðurnesja

2.gr. Merki.
Merki og nafn félagsins er áletrað nafni félagsins og með mynd sem er táknræn fyrir nafnið. Taumerki skal vera með númeri félagsmanns og skal borið á öxl. Merkið er eign félagsins. Númeri skal ekki endurúthlutað þó félagsmaður hætti
 eða falli frá.

3.gr. Heimili.
Heimili félagsins og varnarþing skal vera í Reykjanesbæ.

4.gr. Tilgangur.
Tilgangur félagsins er að koma á sem víðtækustu samstarfi bifhjólafólks á
Suðurnesjum. Stjórn skal ver í forsvari fyrir félagið á opinberum vettfangi.
Stuðla að bættri umferðarmenningu með góðu fordæmi.
Hjóla saman , skemmta sér og öðrum.

5.gr. Inntaka.
Allt áhugafólk um bifhjól getur fengið inngöngu í félagið, að því tilskyldu að
skilyrðifyrir inntöku séu uppfyllt. Inntökuskilyrði í félagið eru að:
1. Umsækjandi í Erni hafi áhuga á bifhjólum.
2. Umsækjandi hafi greitt fullt inntökugjald sem er óendurkræft.
Innifalið er afnot af merki félagsins.

6.gr. Brottvísanir.
Hægt er að vísa einstaklingi úr félaginu hafi hann sýnt að hann sé ekki fullfær
 um að bera merki félagsins. Til þess þurfa fimm fullgildir meðlimir að leggja
fram skriflega, rökstudda kæruna til stjórnar. Stjórn hefur úrslitavald varðandi meðferð brottvísana verði hún samþykkt ber viðkomandi að skila inn merki félagsins.

7.gr. Gjöld.
Rekstur félagsins skal fjármagnaður með félagsgjöldum og öðrum fjáröflunum. Tvær útfærslur eru á félagsgjaldi annars einstakling og síðan fjölskyldugjald. Aðalfundur ákveður félagsgjöld fyrir ár hvert. Félagsgjöld skulu staðgreidd.

8.gr. Sjóður.
Tekjur renna í sjóð félagsins og skal honum varið í rekstur og önnur tilfallandi
verkerfi félagsins. Engin félagi hefur tilkall til hluta af sjóðnum þótt hann
hverfi úr félagsskapnum eða honum sé slitið.

9.gr. Útgáfa.
Stjórn klúbbsins heldur úti heimasíðu www.ernir.com þar er hægt að finna
 ýmsan fróðleik og gagnlegar upplýsingar.

10.gr. Um aðalfund.
Aðalfundur skal haldinn á tímabilinu 15.apríl til 15.maí ár hvert. Skal þar taka
 fyrir venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Stjórn boðar til aðalfundar með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara með tölvupósti, auglýsingu í staðarblaði og á heimasíðu. Eintak af niðurstöðum endurskoðaðra
 ársreikninga skal liggja fyrir á aðalfundi. Fundargerð aðalfundar skal birt á heimasíðu félagsins eins fljótt og auðið er. Aðalfundur er því aðeins
löglegur sé löglega til hans boðað.

11.gr. Aðalfundur.
Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagar:  Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis skuldlausir félagar og fjölskyldumeðlimir sem náð hafa 17 ára aldri enda greiði þeir fullt félagsgjald eftir að 17. ára aldri er náð, enda teljast þeir fullgildir félagar. Engin getur kosið í umboði annars félaga. Á aðalfundi skulu
 tekin fyrir þessi mál:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs
3. Stjórn leggur fram reikninga liðins árs
4. Lagabreytingar samkvæmt 13.gr. laga félagsins.
5. Kosning stjórnar og skoðunarmanna samkvæmt
6. Kosning nefnda samkvæmt 14.gr. laga félagsins.
7. Önnur mál

12.gr. laga félagsins

12.gr.
Í stjórn félagsins skulu kosnir 5 einstaklingar og tveir til vara. Stjórn skal skipuð formanni, varaformanni, gjaldkera, tveimur meðstjórnendum og tveimur varamönnum. Kosið skal í embætti formanns, varaformanns, gjaldkera og
tveggja meðstjórnenda. Einnig skal kjósa tvo varamenn í stjórn.
Kosningu hljóta þeir er flest atkvæði fá. Að auki skal kjósa tvo
skoðunarmenn reikninga ásamt varamanni.
Verði atkvæði jöfn sker hlutkesti úr.


13.gr. Lagabreytingar.
Lagabreytingar má aðeins leggja fram til samþykktar á aðalfundi enda hafi
þeirra verið getið í fundarboði. Ná þær aðeins fram að ganga að 3/4 hlutar
 mættra fullgildra félaga séu þeim samþykkir. Séu þær feldar og bornar upp samhljóða eða efnisbreytingarlaust á næsta aðalfundi þar á eftir ná þær aðeins samþykki með 2/3 hluta atkvæða mættra fullgildra félaga.
Tillögur til lagabreytinga skal senda stjórn eigisíður en þrjátíu dögum
fyrir aðalfund. Allar þær lagabreytingar sem stjórn hafa boristskal senda með aðalfundarboði til félaga félagsins.

14.gr. Nefndir.
Á aðalfundi félagsins skal kjósa í nefndir á vegum félagsins, enn fremur skipar stjórn í nefndir eftir þörfum. Hver nefnd skal skipa sér einn fulltrúa sem er tengiliður við stjórn. Verksvið nefndanna vísast til nafns þeirra og skulu þær
 starfa eftir bestu getu og hafa hagsmuni félagsmanna og bifhjólafólks að
 leiðarljósi. Engin nefnd getur farið út í framkvæmdir og verk án
samþykkis stjórnar, sem þýðir að engin nefnd getur eytt peningum
félagsins eða tíma félagsmanna nema stjórnin hafi samþykkt það fyrst.

15.gr. Stjórn.
Stjórn skiptir með sér verkum. Formaður boðar til stjórnarfunda ef þörf
krefur eða tveir stjórnarmeiðlimir óska þess enda hafi þeir áður gert grein fyrir fundarefni. Tryggt skal að stjórn geti komið saman með stuttum fyrirvara.
Taki varaformaður stjórnar við sæti formanns skal stjórn skipa nýjan varaformann. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum, þó er ályktun því aðeins
 lögleg að þrír stjórnarmenn hið fæsta samþykki hana. Stjórn hefur á hendi sér
allar framkvæmdir milli aðalfunda, hefur eftirlit með nefndum og kemur
fram fyrir hönd félagsins.

16.gr. Aukaaðalfundur.
Stjórn kveður til aukaaðalfundar þegar þess er þörf eða a.m.k. 1/5 hluti fullgildra
félaga félagsins óski þess enda geri þeir áður grein fyrir fundarefni. Til
aukaaðalfundar skal boða skriflega með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.

17.gr. Slit.
Félaginu verður aðeins slitið á aðalfundi og til þess þarf samþykki 3/4 hluta mætra
fullgildra félaga. Fundur sá er félaginu slítur ráðstafar eigum þess til líknarmála.

Lög þessi voru samþykkt á aukaaðalfundi þann 22.október 2005

Til baka

 


Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja  H-88 Húsið Keflavík vefstjori(hjá)ernir.com       Síða hönnuð af KEÓ