Fréttir
8.2.2010
Þorrablót
Þorrablót 27. feb 2010
Kæru Arnarfélagar
Nú er komið að því að halda Þorrablót í annað sinn þar sem síðasta tókst svo vel.
Verð 3.000 kr á mann
Skráning fyrir 20 feb 2010 í
netfang: sunnubraut14@internet.is eða síma 821-5222 Þórhallur
Kveðja
Skemmtinefnd Arna
Þorrablót
|
Á Íslandi er siður að halda þorrablót í febrúar. Þorrablót er veisla, þar sem Íslendingar borða hefðbundinn íslenskan mat, drekka brennivín, syngja íslensk lög, kveða vísur og dansa gömlu dansana. Fyrstu þorrablótin voru haldin í kaupstöðum á Íslandi á nítjándu öld. Það var fólk, sem hafði flutt úr sveitunum í kaupstaðina á Íslandi, sem hélt þau. Líklega vildi fólkið fá að bragða matinn, sem það borðaði heima í sveitinni og hitta ættingjanna úr sveitinni. Þorrablótin voru síðan haldin af átthagafélögum, sem vildu minnast heimabyggðarinnar og sveitunganna. Þegar Ísland var dönsk nýlenda, var Íslendingum bannað að nota salt. (Annars hefðu þeir getað saltað fisk og selt til annarra landa. Þá hefðu þeir getað grætt eigin peninga og orðið sjálfstæðir.) En Íslendingar notuðu aðrar aðferðir við að geyma mat. Maturinn var reyktur, þurrkaður, súrsaður eða kæstur. Flestir þorramatsréttir eru gerðir með þessum aðferðum. |
