Fréttir

2.2.2010

Ný lög

  Lagabreytingar sem samþykktar voru 30.01.2010


 

 

5 gr. Inntaka.

 

Allt áhugafólk um bifhjól getur fengið inngöngu í félagið að því tilskyldu að skilyrði fyrir inntöku séu uppfyllt.  Inntökuskilyrði í félagið eru að:

 

1: Umsækjandi í Erni hafi áhuga á bifhjólum.

2. Umsækjandi hafi greitt fullt inntökugjald sem er óendurkræft

3.  Stjórn Arna þarf að yfirfara umsóknir og eftir atvikum samþykkja inngöngu nýrra félaga.

Innifalið er afnot af merki félagsins.

 

10 gr. Um aðalfund.

 

Haldinn skal aðalfundur fyrir lok janúar ár hvert.  Skal þar taka til venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum klúbbsins.  Stjórn boðar til aðalfundar með a.m.k. tuttugu daga fyrirvara og skal hann boðaður með tölvupósti til félagsmanna, auglýsingu í staðarblöðum og á heimasíðu félagsins.  Með fundarboði skulu fylgja tillögur að lagabreytingum ef einhverjar eru.  Eintak af endurskoðuðum ársreikingum skal liggja fyrir á aðalfundi

 

16.gr. Aukaaðalfundur.

 

Stjórn kveður til aukaaðalfundar þegar þess er þörf eða a.m.k. 1/5 hluti fullgildra félaga félagsins óski þess enda geri þeir áður grein fyrir fundarefni.  Til aukaaðalfundar skal boðað með tuttugu daga fyrirvara, með tölvupósti til félagsmanna, auglýsingu í staðarblöðum og á heimasíðu félagsins.

 

9. gr. Útgáfa.

 

Stjórn klúbbsins heldur úti heimasíðu www.123.is/ernir þar er hægt að finna ýmsan fróðleik og  gagnlegar upplýsingar.

 

12.gr. Stjórnarkjör.

 

Í Stjórn félagsins skulu kosnir 5 einstaklingar og tveir til vara. Rétt til stjórnarsetu hafa þeir sem hafa verið fullgildir félagar í klúbbnum í tvö ár.  Tilkynna þarf framboð til stjórnar skriflega til ritara klúbbsins eigi síðar en 15 janúar, framboðslista skal birta á heimasíðu klúbbsins 16 janúar.  Stjórn skal skipuð formanni, varaformanni, gjaldkera, tveimur meðstjórnendum og tveimur varamönnum.  Hver stjónarmeðlimur skal kosinn til tveggja ára.  Formaður, gjaldkeri, meðstjórnandi og einn varamaður skulu kosnir annað árið.  Varaformaður, meðstjórnandi og varamaður eru kosnir hitt árið.  Formaður má ekki sitja fleiri en tvö kjörtímabil í röð.  Kosningu hljóta þeir sem flest atkvæði fá.  Að auki skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga ásamt varamanni.

Verði atkvæði jöfn sker hlutkesti úr.

 

Skrifað 2.2.2010 kl. 0:14 af KGB

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 362
Gestir í dag: 63
Flettingar í gær: 582
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 74822
Samtals gestir: 22205
Tölur uppfærðar: 10.3.2010 22:41:01