Fréttir

30.12.2009

Tillögur á lagabreytingum.

Tillögur á lagabreytingum fyrir næsta aðalfund sem verður 30 jan 2010

Tilögur að lagabreytingum:

5 gr. Inntaka.

Allt áhugafólk um bifhjól getur fengið inngöngu í félagið að því tilskyldu að skilyrði fyrir inntöku séu uppfyllt.  Inntökuskilyrði í félagið eru að:

1: Umsækjandi í Erni hafi áhuga á bifhjólum.

2. Umsækjandi hafi greitt fullt inntökugjald sem er óendurkræft

3.  Minnst þrjá fullgilda meðlimi þarf ti að mæla með umsækjanda.

Innifalið er afnot af merki félagsins.

10 gr. Um aðalfund.

Haldinn skal aðalfundur fyrir lok febrúar ár hvert.  Skal þar taka til venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum klúbbsins.  Stjórn boðar til aðalfundar með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara og skal hann boðaður með tölvupósti til féalgsmanna og á heimasíðu klúbbsin.  Með fundarboði skulu fylgja tillögur að lagabreytingum ef einhverjar eru.  Eintak af endurskoðuðum ársreikingum skal liggja fyrir á aðalfundi

16.gr. Aukaaðalfundur.

Stjórn kveður til aukaaðalfundar þegar þess er þörf eða a.m.k. 1/5 hluti fullgildra félaga félagsins óki þess enda geri þeir áður grein fyrir fundarefni.  Til aukaaðalfundar skal boðað með tveggja vikna fyrirvara, með tölvupósti til félagsmanna, auglýsingu í staðarblöðum og á heimasíðu félagsins.

9. gr. Útgáfa.

 

Stjórn klúbbsins heldur úti heimasíðu www.123.is/ernir  þar er hægt að finna ýmsan fróðleik og  gagnlegar upplýsingar.

12.gr. Stjónarkjör.

 

Í Stjórn félagsins skulu kosnir 5 einsaklingar og tveir til vara.Rétt til stjórnarsetu hafa þeir sem hafa verið fullgildir félagar í klúbbnum í 3 ár eða lengur.  Tilkynna þarf framboð til stjónar skriflega til ritara klúbbsins eigi síðar en 15 janúar, framboðslista skal birta á heimasíðu klúbbsins 16 janúar.  Stjórn skal skipuð formanni, varaformanni, gjaldkera, tveimur meðstjónendum og tveimur varamönnum.  Hver stjónarmeðlimur skal kosinn til tveggja ára.  Formaður,gjaldkeri, meðstjónandi og einn varamaður skulu kosnir annað árið.  Varaformaður, meðstjórnandi og varamaður eru kosnir hitt árið.  Formaður má ekki sitja fleiri en tvö kjörtímabilí röð.  Kosningu hljóta þeir sem flest atkvæði fá.  Að auki skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga ásamt varamanni.

Verði atkvæði jöfn sker hlutkesti úr.

13.gr. Lagabreytingar.


Lagabreytingar má aðeins leggja fram til samþykktar á aðalfundi eða aukaaðalfundi enda hafi
þeirra verið getið í fundarboði. Ná þær aðeins fram að ganga að 3/4 hlutar
 mættra fullgildra félaga séu þeim samþykkir. Séu þær feldar og bornar upp samhljóða eða efnisbreytingarlaust á næsta aðalfundi þar á eftir ná þær aðeins samþykki með 2/3 hluta atkvæða mættra fullgildra félaga.

Tillögur til lagabreytinga skal senda stjórn eigi síðar en þrjátíu dögum
fyrir aðalfund eða aukaaðalfundar.

 Allar þær lagabreytingar sem stjórn hafa borist skal senda með aðalfundarboði til félaga félagsins.

Skrifað 30.12.2009 kl. 11:51 af KGB

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 330
Gestir í dag: 70
Flettingar í gær: 484
Gestir í gær: 93
Samtals flettingar: 78388
Samtals gestir: 22825
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 20:23:17