Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja

Vafraðu um


Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja

Nafn:

Formaður Pálmi Hannesson

Afmælisdagur:

27-04-2001

Um:

Félagsfundir kl 20. alla fimmtudaga

Næsti félagsfundur Arna fimmtudag kl 20

atburður liðinn í

6 daga

Ljósanótt 4 sept 2010

atburður liðinn í

4 daga

clockhere

Fréttir

31.5.2010

Sjóarinn síkáti laugardaginn 5 júní 2010

Frétt frá Grindjánum http://www.grindjanar.com/


 

Skrifað 31.5.2010 kl. 9:20 af Stjórn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

25.5.2010

Skoðunardagur Frumherja og Arna

Skoðunardagur Frumherja og Arna
Njarðarbraut 7
Laugardaginn 29 maí 2010

Byrjar kl 10 og er til 16

50% afsláttur af skoðunargjaldi og boðið upp á grillaðar pylsur í hádeginu.


Hlökkum til að sjá ykkur.

Skrifað 25.5.2010 kl. 10:48 af Stjórn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

25.5.2010

Landsmót bifhjólafólks

Minna á Landsmót bifhjólafólks 1-4 júlí 2010

Skrifað 25.5.2010 kl. 9:53 af Stjórn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.5.2010

Til sölu Suzuki Boulevard VZR 1800, árg. 2007

Nýtt á til sölu síðunni
emoticon
 

Skrifað 23.5.2010 kl. 10:44 af KGB

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.5.2010

Keyrsla í mótorhjólamessu




Kæru Arnarfélagar
Nú er komið að Mótorhjólamessu í Digraneskirkju
 þann 24 maí 2010 kl 20:00
Arnarhúsið opnar kl 18:30 og lagt af stað kl 19:00
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kveðja stjórnin
emoticon 

Skrifað 19.5.2010 kl. 21:48 af GP

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.5.2010

Mótorhjólamessa

Tekið af síðu www.sniglar.is

Mótorhjólamessa annan dag hvítasunnu 

Skrifað af Bergur Kristinsson

Annan dag hvítasunnu, 24. maí kl. 20 verður árlega mótorhjólamessa í Digraneskirkju.

Ýmsir klúbbar hafa boðið hjálparhönd í tengslum við messuna.
Kerúbar verða með umferðarátak og forvarnarstarf á bílastæði kirkjunnar um daginn og video fyrirlestur í kapellunni.
Óskabörn Óðins koma hjólum fyrir á skyggni kirkjunnar.
Salvation Riders sjá um uppröðun á bílaplani.
Skutlurnar leggja til prest í þjónustuna og sjá um svolítið "bleikt" thema í messunni.
Trúboðar annast um bænagjörð.

Mótorhjólamessan er árlegur viðburður þar sem hinir ýmsu mótorhjólaklúbbar ríða fákum sínum í fylkingum til Digraneskirkju.Sjaldan koma svo mörg vélhjóla saman á einum stað svo almenningi gefst tækifæri á því að skoða fákana og spjalla við ökumenn þeirra.

Messan er ALVÖRU messa, með prédikun og altarisgöngu, svo það er ekkert slegið af í helgihaldinu, þó svo umbúnaðurinn sé sveipaður léttleika og prestarnir (sem verða að vera mótorhjólafólk) eru búnir sama klæðnaði og viðbúið er af vélhjólafólki (hefðbundnum öryggisbúnaði vélhjólamanna). Leður og Goretex er því "viðeigandi" klæðnaður.

Mótorhjólamessan er einnig samstarfsverkefni Þjóðkirkju og Hvítasunnu og hafa prestar frá báðum þessum kirkjudeildum annast um helgihald. Það er stórkostlegt að sjá svo fjölbreytilegan söfnuð koma saman til helgihalds og ekki spillir nú fyrir að þetta minnir líka á það að við erum líka til í samfélaginu og umferðinni.

Mótorhjólamessan tekur mið af ýmsum hefðum sem skapast hafa í "mótorhjólaheiminum", bæði hvað varðar tónlist og annað. Hún er því nokkuð "hrá" og gæti farið fyrir brjóstið á þeim sem leitast eftir hefðbundnara helgihaldi.

Mótorhjólamessan hófst í Digraneskirkju árið 2006 þegar 115 manns komu til messu á 55 vélfákum. Mótorhjólamessunni hefur aukist fylgi milli ára. Arið 2007 komu 240 manns á 170 hjólum. Arið 2008 yfirfylltist kirkjan (sem tekur 320 manns) með 380 riddurum götunnar á 230 fákum. Ári síðar (2009) komu 402 mótorhjólamenn í messu þannig að þetta stefnir í stórviðburð á þessu ári enda löngu búið að sprengja allt rými sem annars hæfir fyrir venjulegar messur.


Skrifað 18.5.2010 kl. 17:28 af Stjórn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.5.2010

Flottur Forvarnardagur




Við viljum þakka öllum þeim sem tóku þátt í Forvarnardegi okkar 13 maí fyrir þátttökuna, áttum alveg frábæran dag.
Vonum að þið komið betur undirbúin fyrir komandi hjólasumar.


     Hér linkur á kennslumyndbandið hans Kalla


http://arney.123.is/flashvideo/viewvideo/21422/



Kveðja Stjórnin
emoticon 





Skrifað 14.5.2010 kl. 21:38 af Stjórn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.5.2010

Konukvöld Arna

Konukvöld Arna

Arnarskvísur

 Hvort sem þú ert hjólandi, meðlimur í Örnum eða einginkona/kærasta meðlims þá viljum við fá að kynnast þér og reyna að fá konurnar til að vera með. Það kemur allt of oft fyrir að karlarnir eru að koma einir á viðburði og konurnar vilja ekki koma með af því að þær þekkja enga eða fáar. Nú ætlum við að reyna að þjappa konunum í Örnum  saman og bjóða öllum konum að koma og þiggja kaffi næsta
þriðjudaginn 18. Maí kl 19,30 upp í Arnarhreiðri.
Endilega komið og heyrið hvað við erum að gera og takið þátt í starfi klúbbsins. Þið þurfið ekkert að vera hræddar um að vera kosnar í nefnd eða að þurfa að gera eitthvað eða yfirhöfuð hafa áhuga á mótorhjólum, við viljum bara kynnast ykkur og njóta félagsskapar fleirri kvenna.

Kveðja formaður Skvísunefndar

Fjóla Hilmarsdóttir #200

Skrifað 13.5.2010 kl. 21:26 af Fjóla

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.5.2010

Dagskrá Arna fyrir Maí 2010

Maí.

1. Maí. Hópkeyrsla með Sniglum /10 ára afmæli Postula á Selfossi

 7. Maí.  Skemmtikvöld, hefst kl. 19:30 og lýkur kl. ?
13. Maí.  Forvarnardagur kl. 10:00 - 13:00

15. Maí.  Hjólasýning Rafta Borgarnesi.

24. Maí. Mótorhjólamessa í Digraneskirkju.

29. Maí. Skoðunardagur Arna.

emoticon 

Skrifað 13.5.2010 kl. 16:27 af KGB

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.5.2010

Vegna sýningu Rafta á laugardaginn

Sælir félagar

Farið verður keyrsla á sýningu Rafta í Borganesi 15 maí 2010

Arnarhreiðrið opnar kl 11:00 
Lagt verður af stað kl 11:30
Hlökkum til að sjá ykkur.

Kveðja stjórnin

Skrifað 13.5.2010 kl. 16:07 af KGB

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.5.2010

Sýning Rafta

www.raftar.is
Vegna sýningardags Rafta.

Vinsamleg tilmæli er um að virða hámarkshraða innan bæjamarka.
Við verðum í bandi við lögreglu ef um stóra hópa er að ræða sem eru að koma á sama tíma.
Sérstaklega er tekið fram að ekki verði tekið reykspól á Menntaskólalóð.
Athugið að frítt er í göngin fyrir hjólamenn frá kl. 13.00 til 18.00 á
laugardaginn.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Hér er dagskrá Raftasýningar.
Langar að vekja sérstaka athygli á Racer atriðinu kl.14.00 á Borgarbraut.
Þar taka vel þjálfaðir ökumenn racerhjól sín til kostanna  og aka á
afturdekkinu einu saman. Þetta verður einstaklega skemmtilegt og spennandi
atriði  að horfa á.
   13.30 - 14.00  Sandcross
   14.00 - 14.30  Racer show á Borgarbraut.
   14.30 spilar Stórhljómsveit Bifhjólamanna nokkur lög. Notað verður   áður óþekkt gerð af Yamaha hljóðfæri.
   15.00 og 16.00 sýna ökumenn Trial hjóla listir sínar við Menntaskólann.

Fullt hús af hjólum og fallegu dóti.
Og ekki má gleyma dásamlegu vöfflunum okkar.

Frítt inn.

Fyrir hönd Sýningarnefndar.

Torfi Raftur

Skrifað 13.5.2010 kl. 16:02 af KGB

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.5.2010

Forvarnardagur Arna!

Forvarnardagur Arna !

Fimmtudaginn 13. maí verður haldinn forvarnadagur Arna, dagskrá hefst kl. 10:00 og er áætlað að þessu ljúki um kl. 13:00.  Endilega takið frá þennan tíma, gott að mæta og fara yfir öryggismál varðandi akstur mótorhjóla, æfingarakstur og ýmis fróðleikur í boði.  Nánari dagskrá send út síðar.

Stjórnin.   emoticon

Skrifað 3.5.2010 kl. 21:37 af Stjórn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.5.2010

Skemmtikvöld 7 maí 2010

Skemmtikvöld föstudaginn 7. maí.

Skemmtikvöld verður haldið í Arnarhreiðrinu föstudagskvöldið 7. maí,
húsið opnað kl. 19:30, ýmislegt verður gert sér til skemmtunar í boði Spotta og co !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!



Boðið verður upp á gos og hamborgara að hætti Spotta, enda búin að vera starfsmaður á plani í því, emoticon komin með reynslu.

Hlökkum til að sjá ykkur hress og kát.
Skemmtinefndin 
emoticon  


Skrifað 3.5.2010 kl. 21:33 af Stjórn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 242
Gestir í gær: 68
Samtals flettingar: 148259
Samtals gestir: 38280
Tölur uppfærðar: 8.9.2010 00:23:07