Fréttir
25.9.2009
Auka aðalfundur!
Auka aðalfundarboð
Ernir bifhjólaklúbbur Suðurnesja
boðar til auka aðalfundar laugardaginn 10. október kl. 17:00 í Arnarhreiðrinu
Fundarefni:
Lagabreytingar
Breytingar þær sem um ræðir eru viðbót á 12 grein þar sem við bætist "Tilkynna þarf framboð til stjórnar skriflega til ritara klúbbsins eigi síðar en 15. janúar, framboðslista skal byrta á heimasíðu klúbbsins 16. janúar "
12 grein hljóðar því svo eftir breytingar:
12.gr. Stjórn.
Í stjórn félagsins skulu kosnir 5 einstaklingar og tveir til vara. Tilkynna þarf framboð til stjórnar skriflega til ritara klúbbsins eigi síðar en 15. janúar, framboðslista skal birta á heimasíðu klúbbsins 16. janúar. Stjórn skal skipuð formanni, varaformanni, gjaldkera, tveimur meðstjórnendum og tveimur varamönnum. Kosið skal í embætti formanns, varaformanns, gjaldkera og
tveggja meðstjórnenda. Einnig skal kjósa tvo varamenn í stjórn.
Kosningu hljóta þeir er flest atkvæði fá. Að auki skal kjósa tvo
skoðunarmenn reikninga ásamt varamanni.
Verði atkvæði jöfn sker hlutkesti úr.
Með hjólakveðju
Stjórnin
22.9.2009
Lokið við að flytja heimasíðuna yfir
Síðan er enn í mótun og getur tekið útlitbreytingum eftir því sem hún þróast.
Vonandi mun þessi breyting hafa það í för með sér að fleyri setji inn efni og tilkynningar í framtíðinni sem hafa aðgang að heimasíðunni.
Með kveðju,
Vefstjórar
19.9.2009
Kennslumyndband
Kæru félagar.
Í sumar voru nokkrir félagar í Örnum svo hjálpsamir við gerð lokaverkefnis okkar í Ökukennaranám við HÍ og viljum við þakka þeim sérstaklega fyrir það. Verkefnið felur í sér gerð kennslumyndbands og bæklings um hópakstur og merkjamál. Það er okkur sönn ánægja að sýna ykkur afraksturinn næstkomandi fimmtudagskvöld 24-9 á almennum félagsfundi kl 20:00. Vonumst til að sjá sem flesta.
Kær kveðja
Karl Einar Óskarsson
Hallgrímur Gunnarsson
7.9.2009
Frá umferðastofu
Umferðarstofa vekur athygli á því að breyting varð á reglugerð um skoðun ökutækja með tilkomu nýrrar reglugerðar í janúar sl.
Samkvæmt reglugerð nr. 8/2009 um skoðun ökutækja er nú skylt að færa bifhjól til skoðunar fyrir þann 1. ágúst á skoðunarári, óháð síðasta tölustaf í skráningarmerki. Hafi skoðun ekki verið lokið fyrir þann 1. október leggur sýslumaðurinn á Bolungarvík vanrækslugjald að upphæð kr. 15.000,- á eiganda bifhjóls.
Ýmsar aðrar breytingar áttu sér stað með nýju skoðunarreglugerðinni, s.s. varð skylt að skoða hjólhýsi, tjaldvagna og fellihýsi, skoðanatíðni ýmissa ökutækjaflokka breyttist og margt fleira. Áhugasamir geta kynnt sér samantekt þessara breytinganna hér: http://www.us.is/id/1000329
