Ernir bifhjólaklúbbur Suðurnesja

Hit Counter

Gestir síðan 25-10-2002

Heim!
FélagarTil sölu nýtt 26-5DagatalNetmyndirHlekkirMyndasíða ArnaÍslensk kynningFundagerðir

Lög Arna
Færð/Kort
Stjórn/nefndir
Umsókn í ErniGestabók
Nýtt Ferðir/tilboð
Opnunartími

Breski fáninn  

Félagar ATH   endilega sendið mynd af hjólinu ykkar og einnig emailið ykkar ef þið fáið ekki póst frá OKKUR
vefstjori(hjá)ernir.com

14-6-09

Sniglabandið spilar föstudagskvöld og

 skemmtiball á laugardagskvöldi

Dagskrá mótsins

 

22-6-09

                                                                                                      

Reykjanesdagurinn 2009

Laugardaginn 27. júní verður hin

 árlegi Reykjanesdagur Arna haldinn í

 samstarfi við N1, Sveitarfélagið Garð

 og Icebike.

Dagskráin:

1.               Kl. 11.00 mæting við N1 á Ásbrú (gamla service station) kynnig á vörum frá Nítró. N1 býður upp á léttar veitingar.

2.               Kl. 13.00 farið af stað í hópkeyrslu út í Garð á Sólseturshátíð. Hjólunum stillt upp út á Garðskaga.

3.               Kl. 14.00 Lagt af stað frá Garðskagavita og hjólað í gegnum Sandgerði um nýja Ósabotnaveginn að Hafnarvegi og endum síðan hjá Icebike. Veitingar verða í boði Sparisjóðsins í Keflavík, Arna og Icebike.

Vonum til að sem flestir sjái sér fært að mæta og eiga góðan dag með okkur.

Með hjólakveðju,

Stjórn Arna

 

22-6-09

Jónsmessuakstur 23. júní 

Mæting í Arnarhreiður kl. 19:40 og lagt í‘ann ekki seinna en kl. 20:00

ÞAÐ SPÁIR HÆGVIÐRI OG RIGNINGARSLETTUM. Þ.e.a.s. dæmigert  þægilegt sumarveður þetta árið. Við látum ekki ofurlitla vætu slá okkur út af laginu og mætum í sólseturs akstur með sólskins bros á vör.

Hjólað sem leið liggur í Straum við álverið en við fáum afdrep í salnum í Straumi ( í boði Arna).

Ef við fáum þokkalega uppstyttu stendur til að fara í leiki á  túninu/planinu 

Að leikjum loknum sötrum við kakó (kr. 400 á mann) og spjöllum saman.

Leggjum svo í‘ann aftur og tökum rúnt um Hafnarfjörð á leiðinni heim

LÉTTUR OG ÞÆGILEGUR AKSTUR VIÐ ALLRA HÆFI

13-6-09

Jónsmessa – Miðnæturkeyrsla

Þægilegur, léttur og fjölskylduvænn rúntur.

Auglýst nánar síðar (með skömmum fyrirvara) með

 tilliti til veðurspár
J

Kveðja Klara

9-6-09



Sturlungadagurinn verður haldin hátíðlegur nú í 3 skiptið. Ætlunin er að hittast kl 14 á Thorsplani í Hafnarfirði og taka góðan rúnt eitthvað út fyrir bæinn. Um kvöldið verður boðið upp á grill og garden partý hjá okkar ástkæra Jarli. Til þess að við getum glöggvað okkur á hversu miklar birgðir við verðum að sækja í kaupstað væri gott að þeir sem hafa hug á því að eta két og bragða mjöð (áfengan eða óáfengan) gegn vægu gjaldi myndu skrá sig fyrir fimmtudaginn 11.júní.

Skráning í síma 6962045 og á facebook

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest kæru vinir.

Sturlungar MC

7-6-09

Arnar-skvísur
 

Mætum á þriðjudaginn kl 19. upp í Arnarhreiðri, farið verður til RVK kl 19:20 á Nings í Hlíðarsmára og fáum okkur að borða.

Allar að mæta, sjáumst hressar.

Kristjana

3-6-09


Tvísmellið á kotið til að stækka

Akstursleiðin og þeir staðir sem þátttakendur draga spil

28-5-09


Tvísmellið á myndina til að stækka

Laugardaginn 6. 6. verður Poker Run á suðurnesjum að amerískri fyrirmynd, sem virkar þannig að hjólamenn koma í félagsheimili Arna og kaupa gögn, ökumaður 1000 kr. farþeginn getur einnig tekið þátt fyrir 500 kr.

Leikurinn gengur út á það að hjólað er á fimm staði á Reykjanesinu, Veitingahúsið Flösin Garði ( út við Garðskagavita ) Orkuverið Jörð ( Orkuver Hitaveitunnar á Reykjanesi ) við Bláa Lónið 14 – 14.30 ( þá er farið í hópkeyrslu til Grindavíkur á sjóarann síkáta ) Þjónustustöð N1 í Vogum á Vatnsleysuströnd og síðan er síðasta spilið dregið í Arnarhreiðrinu á milli kl. 18:30 og 19:00.

Það er ekki nauðsynlegt að aka hringinn í þessari röð. Einu föstu tímarnir eru 11:00 – 13:00 í Arnarhreiðrinu 14:- 14:30 við Bláalónið og svo við Arnarhreiðrið kl. 18:30 – 19:00.

Það verður kort af svæðinu í Arnarhreiðrinu sem sýna staðina og skemmtilegar leiðir sem hægt er að aka fyrir þá sem ekki eru kunnugir svæðinu. Td. Um Ósabotnaverg sem er nýr vegur frá Sandgerði til Hafna um Stafnes.

Allur ágóði af þessari uppákomu rennur til Lundar sem er forvarnarfélag fyrir ungt fólk sjá nánar á www.lundur.net .

28-5-09

Nokkur mikilvæg atriði um bifhjól

Áhugaverð grein á visir.is eftir Einar Magnús Magnússon upplýsingafulltrúa Umferðastofu

27-5-09

Mótormessan í Digraneskirkju verður að venju annan í hvítasunnu kl. 20:00, lagt verður af stað frá Hreiðrinu kl. 18:30, hjólað inn í Hafnarfjörð og stoppað á Súfistanum, lagt af stað þaðan kl. 19:00.

25-5-09

Arnarhreiðrið er opið á mánudögum og miðvikudögum frá kl 20.00 til 22.00 í sumar. Endilega látið sjá ykkur hvort sem þið eruð hjólandi eða akandi. Alltaf heitt á könnunni. Skvísufundir á þriðjudögum og félagsfundir á fimmtudögum. Sjá dagatal Arna hér til hliðar.

25-5-09

Kæru félagar!

Nú langar mig að biðja ykkur um að senda mér myndir af hjólunum ykkar svo hægt sé að setja það inn á félagatalið. Það hefur nefnilega verið talað mikið um hversu skemmtilegt það sé að getað séð hjólið á bak við Örninn
. Einnig vil ég endilega fá email frá þeim sem ekki hafa fengið póst frá Örnum

Koma svo sýnum viljann í verki
Kveðja Kalli vefstjori(hjá)ernir.com

17-5-09

Skoðunardagur Frumherja og Arna 2009

Hinn árlegi skoðunardagur Frumherja og Arna verður haldinn laugardaginn 23.maí frá kl. 10.00 - 16.00 í skoðunarstöðinni í Njarðvík.Um að gera að nýta sér að láta skoða hjólið með 50% afslætti. Boðið verður upp á grillaðar pylsur í hádeginu eða meðan birgðir endast.

Sjáumst sem flest í góðum gír á laugardaginn.

13-5-09

Búið er að uppfæra opnunartímann fyrir sumarið 2009. Sjá nánar hér til hliðar og á dagatali Arna.

24-4-09

Óskoðuð hjól

Bifhjólafólk athugið !!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Þeir sem eru enn með
  08 miða þ.e. óskoðað  geta átt hættu á því að klippt verði af hjólunum þegar mætt verður til hópaksturs þar sem lögreglan stjórnar!!! Þetta kom fram á fundi með Umferðastofu og lögreglu í þann 22/4.

Endilega komið þessum skilaboðum áleiðis.

24-3-2008 

Eldri fréttir!

Til baka


Dagatal Arna
Dagskráin 2009

Arnarhreiðrið
Staðsetning nánar hér!
 

 

 

Ernir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja  Arnarhreiðrið Vallarheiði vefstjori(hjá)ernir.com     Síða hönnuð af KEÓ